Kerfið sameinar alla mikilvæga þætti gæðastjórnunar í eitt notendavænt umhverfi og veitir þér yfirsýn og stjórn á gæðamálum í daglegum rekstri. CCQ veitir fyrirtækjum tól til að meta, rekja og sýna fram á samræmi við staðla, lög og reglur — allt frá ISO staðlum til GDPR og annarra stjórnsýslu- og rekstrarskyldna .


Einfalt vottunarferli

Innbyggðir staðlar og skýr yfirsýn yfir kröfur einfalda alla vinnslu við vottun. Úttektaraðilar fá sérsniðið yfirlit sem flýtir fyrir ferlinu.

Betri yfirsýn

Persónumiðað yfirlit sýnir þér nákvæmlega það sem þú þarft að vita. Fylgstu með verkefnum, stöðu skjala og áhættum á einum stað.

Öruggari rekstur

Kerfisbundin áhættustjórnun og rekjanleiki allra aðgerða tryggir að engin mikilvæg atriði gleymist.

Aukin upplýsingagjöf

Sjálfvirkar tilkynningar og staðfestingar á lestri tryggja að allir séu upplýstir. Engin töpuð skilaboð eða óvissa um hvort starfsfólk hafi kynnt sér mikilvæg skjöl.

Ávinningur fyrir fyrirtækið þitt:

✔️ Færð betri yfirsýn yfir gæðakerfi og hlítingu
✔️ Átt skýra og aðgengilega staðla og verklagsreglur
✔️ Lækkar rekstrarkostnað með sjálfvirkni og skipulagðri skráningu
✔️ Eykur traust starfsfólks og viðskiptavina með stöðluðum ferlum
✔️ Getur betur staðið undir ytri úttektum og vottunum

Hvað CCQ hjálpar þér að ná:

Halda öllum gæðaskjölum, verklagslýsingum, reglum og stöðlum á einum stað með rekjanleika og útgáfustýringu

Tryggja upplýsingaflæði til starfsfólks með möguleika á staðfestingu lestrar og úrvinnslu á athugasemdum

Greina, skrá og vinna með frávik, atvik og ábendingar í stöðluðu ferli

Skipuleggja og framfylgja úttektum og viðhalda aðhaldskerfum sem styðja við vottun og ytri skoðanir

Koma auga á og stýra áhættum í rekstri sem hluta af gæðakerfinu

Stjórna eignum, hæfni starfsfólks og öðrum lykilþáttum sem styðja við heildstæðan rekstur

Kerfinu er skipt í margvíslegar einingar sem vinna saman — t.d. gæðahandbók, áhættustjórnun, úttektir, eignastjórnun og hæfnisstjórnun — allt til að styðja við sjálfbæra og skilvirka gæðastjórnun

CCQ STUNDIN

Vegferðin að DORA hjá SL lífeyrissjóði

Fáðu ráðgjöf

ORIGO CCQ teymi