Gæðastjóri til leigu
Margir stjórnendur upplifa að gæðamál sitji á hakanum vegna tímaskorts eða skorts á sérhæfðri þekkingu innanhúss. Gæðastjóri til leigu er ný þjónusta frá CCQ, hönnuð fyrir fyrirtæki sem vilja hámarka gæði, lágmarka áhættu og tryggja skilvirkan rekstur án þess að binda sig í kostnaðarsömum fastráðningum.
Með gæðastjóra CCQ færð þú fagmann sem sér um uppbyggingu gæðakerfisins frá grunni, þjálfun starfsfólks og innleiðingu á mælanlegum umbótum.


Skýr framvinda
Innleiðing og fagleg stjórnun
Við fylgjum þér alla leið, frá fyrsta fundi þar til kerfið er orðið virkur hluti af rekstrinum. Við leggjum ríka áherslu á skipulag og gagnsæi í öllu ferlinu.
Skýrt verklag
Skjalfesting sem skapar virði
Við setjum upp kerfi sem endurspeglar raunverulegt verklag fyrirtækisins og auðveldar starfsfólki lífið.


Sameiginlegur skilningur
Efling gæðamenningar og þjálfun
Gæðakerfi er aðeins eins sterkt og fólkið sem notar það. Við leggjum áherslu á að valdefla starfsfólkið og skapa menningu þar sem allir taka þátt í stöðugum umbótum.
Stöðug eftirfylgni
Gæðastjórnun í daglegri notkun
Við tryggjum að gæðastarfið haldi áfram eftir innleiðingu. Við sjáum um að halda taktinum og tryggja að kerfið virki eins og til er ætlast.

