CCQ Stundin

CCQ stundin er hlaðvarp þar sem við fjöllum um gæðamál frá hinum ýmsu sjónarhornum.

Halla Marinósdóttir, stjórnandi á sviði árangurs og umbóta, er gestur CCQ stundarinnar að þessu sinni. Orkusalan rekur mjög öflugt gæðastarf þar sem unnið er að stöðugum umbótum. Þau eru með jafnlaunavottun, ISO 14001 og ISO 45001 og því að mörgu að huga.

Halla segir frá vegferðinni sem hún hefur leitt í gæðastarfi Orkusölunnar og nýtt tæknina sér til stuðnings.

Reykjanesbær

Aðalheiður Júlíurós Óskarsdóttir og Anna Maria Hedman

Aðalheiður Júlírós Óskarsdóttir er gestur CCQ stundarinnar að þessu sinni. Aðalheiður hefur tekið við stöðu gæðastjóra sveitarfélagsins og umtalsverðar breytingar hafa átt sér stað síðan hún kom síðast í viðtal fyrir rúmum 3 árum síðan. Aðalheiður ræðir um þróun gæðamála hjá Reykjanesbæ frá því hún hóf störf.

Kaffispjall um ábendingar

Anna Maria Hedman

Í október 2023 var CCQ með kaffispjall um ábendingar vegna útlitsbreytinga sem nýlega voru gefnar út.

Að ná fólkinu með sér í innleiðingu gæðastjórnunar

Faghópur Stjórnvísi um ISO/Gæðastjórnun stóð fyrir viðburði um „Að ná fólkinu með sér í innleiðingu gæðastjórnunar“ Viðburðurinn var haldinn til húsa hjá Origo. Anna Maria Hedman, vörustjóri CCQ og var fundarstjóri og Aðalheiður Júlíurós Óskarsdóttir, gæðastjóri hjá Reykjanesbær sagði frá árangursögu Reykjanesbær. Hún innleiddi Gæðastjórnun fyrir tæplega þremur árum síðan og þau notar CCQ gæðakerfið.

Orkusalan

Elísabeth Ýr Sveinsdóttir og Hildur Björk Pálsdóttir

Elísabet Ýr Sveinsdóttir, fjármálastjóri Orkusölunnar, er gestur CCQ stundarinnar að þessu sinni. Elísabet Ýr tók við stöðu fjármálastjóra í júní 2021 og fékk fljótlega það verkefni í hendurnar að innleiða jafnlaunakerfi samkvæmt lögum um jafnan rétt og jafna stöðu kynjanna. Orkusalan hefur lagt mikla vinnu í gæðamál hjá sér og innleiddu CCQ sem gæðastjórnunarkerfi hjá sér og hafa unnið mjög flotta vinnu þar inni. Elísabet segir frá jafnlaunakerfinu, uppbyggingu þess með Justly Pay og notendaupplifun í CCQ.

SL Lífeyrissjóður

Siburbjörn Sigurbjörnsson og Anna Maria Hedman

Sigurbjörn Sigurbjörnsson, framkvæmdastjóri SL lífeyrissjóðs, er gestur CCQ stundarinnar að þessu sinni.  Sigurbjörn hefur starfað hjá sjóðnum síðan 1989 og sem framkvæmdastjóri síðan 1997. SL lífeyrissjóður var fyrsti lífeyrissjóðurinn á Íslandi til þess að hljóta ISO vottun og eru þau í dag með bæði ISO 9001 og ISO 27001 og eru að vinna hörðum höndum að því að ná ISO 14001 vottun. Sigurbjörn segir frá gæðamálum og gæðastjórnun hjá SL lífeyrissjóði og hvernig þróun hefur verið í þeim málum. 

Versa Vottun

Gná Guðjónsdóttir og Anna Maria Hedman

Gná Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Versa Vottunar, er gestur CCQ stundarinnar að þessu sinni. Gná er annar stofnandi Versa Vottunar, sem býður upp á þjónustu tengda úttekt og vottun á stjórnkerfum fyrir skipulagsheilidir í öllum starfsgeirum. Versa Vottun fór nýlega í gegnum alþjóðlega faggildingu sem þýðir að vottanir veittar af Versa Vottun gilda á alþjóðamarkaði en ekki aðeins á Íslandi. Í CCQ stundinni ræða Maria og Gná um hvað það þýðir að fara í vottun, hvað þarf að vera tilbúið fyrir 1. stigs úttekt og svo 2. stigs úttekt.

Persónuvernd – Reykjanesbær

Hrefna Gunnarsdóttir og Anna Maria Hedman

Hrefna Gunnarsdóttir verkefnastjóri persónuverndar er gestur okkar að þessu sinni. Hrefna sér um persónuvernd hjá Reykjanes- og Suðurnesjabæ. Hún hefur séð um málaflokkinn í langan tíma og var farin að vinna með vinnsluskrár í Excel áður en nýju persónuverndarlögin tóku gildi árið 2018. Hrefna segir frá vegferðinni frá því að halda utan um vinnsluskrár í Excel yfir í að sjá um þær í gegnum CCQ. Í vinnu sinni notast Hrefna við Frávikagreininga-einingu CCQ, sem á ensku nefnist Questionnaire. Hún segir frá hlutverki sínu og hvaða verkefnum hún sinnir.

Stafrænt vottunarferli á tímum Covid

Stafræn ráðstefna

Gestir vefvarps CCQ-stundarinnar, á vordögum 2021 voru:
Aðalsteinn hjá Skeljungi sem fjallaði um meðhöndlun ábendinga
Sigurður hjá Kópavogsbæ sem sagði frá áskorunum og tækifærum í stjórnunarkerfi Kópavogsbæjar
Harpa hjá Colas Íslandi sem talaði um innri úttektir
Jóhanna hjá Reykjavík Excursions sem sagði frá viðhaldi vottunar í rekstri sem hvarf í COVID

Kópavogsbær

Anna Maria Hedman og Sigurður Arnar Ólafsson

Sigurður Arnar Ólafsson gæðastjóri hjá Kópavogsbæ leiðir stjórnunarkerfi gæða hjá Kópavogsbæ. Hann segir frá því hvernig stjórnunarkerfi gæða hefur þróast hjá Kópavogsbæ. Nýverið fór hann í gegnum endurvottun á ISO 9001 og í þættinum fáum við að heyra hvernig það gekk og hvað er framundan hjá honum og starfsfókli Kópavogsbæjar.

Heilbrigðislausnir

Ráðstefna

Mariu Hedman, vörstjóra CCQ, á notendaráðstefnu Heilbrigðislausna Origo sem haldin var 19. nóvember síðastliðinn. Maria fer yfir hvernig CCQ getur nýst til þess að halda utan um klínískar leiðebiningar, verklagsreglur og vinnulýsingar og hvernig það getur hjálpað heilbrigðisstarfsfólki að nálagst sín gögn.

Skeljungur

Aðalsteinn Árnason

Aðalsteinn segir okkur frá þessu ferðalagi og hversu fljótt og vel starfsfólk hefur aðlagast og lært á nýjar lausnir sem hafa auðveldað þeim sín daglegu störf. Nýverið hefur Skeljungur hlotið tvær ISO vottanir með afburða árangri, þar sem vottun hlaust án nokkra athugasemda. Þau vinna metnaðarfullt starf og huga vel að öllum gæðamálum sem er auðvitað mjög mikilvægt í þeirra rekstri. Aðalsteinn fer yfir ferlið og þeirra gengi.

Betri Gæðastýring með CCQ

Stafræn vottun með CCQ

Gæðavottanir staðfesta að við séum með virkt gæðakerfi og stöðugt að huga að umbótum, endurskoða verkferla, vinnulýsingar og stefnur, staðfesta að við séum að vinna eftir þeim reglum sem við höfum sett okkur, að upplýsa starfsfólkið okkar um breytingar eða nýjar verklagsreglur, taka á móti ábendingum, meta áhættu og í sumum tilfellum að huga að eignum.

Droplaugarstaðir

Jórunn Ósk Frimansdóttir og Anna Maria Hedman

Jórunn Ósk er forstöðumarður hjúkrunarheimilisins Droplaugarstaða í Reykjavík. Droplaugarstaðir hlaut nýverið, á vormánuðum 2020, ISO 9001 vottun.
Þau eru fyrst hjúkrunarheimila á Íslandi, mögulega Norðurlandanna, til þess að hljóta slíka vottun. Jórunn Ósk segir Mariu frá þeirra vegferð.

Reykjanesbær

Aðalheiður Júlírós Óskarsdóttir og Anna Maria Hedman

Aðalheiður Júlírós er verkefnastjóri gæðamála hjá Reykjanesbæ. Reykjanesbær hóf innleiðingu á CCQ í byrjun árs 2020. Aðalheiður segir okkur frá innleiðingarferlinu, hvernig COVID-19 hefur haft áhrif á það og hvernig þau vinna vinnsluskrá fyrir persónuvernd í kerfinu.

Límtré Vírnet

Einar Bjarnason og Anna Maria Hedman

Einar segir okkur frá flutningi gæðahandbókarinnar úr Focal í CCQ og hvernig þau vista nú öll frumrit tengd gæðahandbókinni í CCQ. Límtré Vírnet notar CCQ eignaskrá mikið. Límtré Vírnet eru CE vottuð og nýverið fór viðhaldsúttekt fram með öðrum hætti en vanalega. Úttektin var framkvæmd í gegnum Teams, CCQ og síma.