17. CCQ
17.1 Tilgangur og eðli vinnslu
Origo ehf (vinnsluaðili) sér um hýsingu á kerfinu. Þá hefur vinnsluaðili eftir atvikum aðgang að upplýsingum í kerfinu í tengslum við þjónustu og tæknilega aðstoð sem veitt er þjónustukaupa (ábyrgðaraðila).
17.2 Flokkar skráðra einstaklinga og flokkar persónuupplýsinga
Unnið er með þær persónuupplýsingar sem ábyrgðaraðili setur inn í kerfið. Þær upplýsingar og flokkar skráðra einstaklinga sem einkum koma til greina eru eftirfarandi, eftir því hvaða einingar og virkni CCQ gæðastjórnunarkerfis.
Í tengslum við allar einingar CCQ gæðastjórnunarkerfisins:
- Nafn og notendanafn notenda kerfisins
- Netfang notenda kerfisins
- Heimildir notenda og aðgangsstýringar
- Næsti yfirmaður og vinnuveitandi notenda kerfisins
- Stillingar sem hver notandi hefur valið
Í tengslum við hæfnistjórnun í CCQ gæðastjórnunarkerfinu:
- Ferilskrá starfsfólks/verktaka
- Menntun starfsfólks/verktaka
- Þjálfun og námskeið starfsfólks/verktaka
- Réttindi starfsfólks/verktaka
Í tengslum við úttekt í CCQ gæðastjórnunarkerfinu:
- Frávikaskráning
Í tengslum við eignaskrá í CCQ gæðastjórnunarkerfinu:
- Upplýsingar um samninga ábyrgðaraðila
- Upplýsingar um búnað og aðrar eignir, eftir atvikum niður á einstaklinga
Í tengslum við ábendingareiningu CCQ gæðastjórnunarkerfisins:
- Samskiptaupplýsingar þess sem sendir inn ábendingu, eftir því sem við á
- Efni ábendinga, s.s. slysaskráningar, næstum því frávik, atvik o.s.frv. Tekið skal fram að í ábendingum kunna að koma fram viðkvæmar persónuupplýsingar, eftir því í hvaða tilgangi ábyrgðaraðila nýtir eininguna.
17.3 Undirvinnsluaðilar
Microsoft Azure, 805 91 Gävle, Sweden
- Hýsing á CCQ gæðastjórnunarkerfinu
- Hýsingin á sér stað í Gävle, Svíþjóð.
Syndis ehf., kt. 580113-0600, Dalvegur 30A, 203 Kópavogur
- Vöktun á vöktunar- og beiðnakerfi og þjónusta á log-management kerfi vinnsluaðila. Í tengslum við þjónustuna hefur Syndis aðgang að IP tölum, tengiliðaupplýsingum og upplýsingum um efni beiðna úr beiðnakerfi.
- Sérhæfð öryggisþjónusta og ráðgjöf. Aðgangur Syndis ehf. getur náð til allrar þeirra upplýsinga sem vinnsluaðili vinnur fyrir hönd ábyrgðaraðila.
