CCQ skólinn hefur nú verið endurvakinn og mun hann standa fyrir námskeiðum bæði í aðferðafræði gæðastjórnunar og CCQ gæðakerfunum í opinni dagskrá á nýju ári.
Námskeiðin eru stutt og hnitmiðuð og er markmið þeirra að auðvelda starfsfólki að taka virkan þátt í gæðastarfinu án langrar þjálfunar.
Magnus Hildershavn Nilsen Leiðbeinandi í Áhættugreining
Staður og stund:
25. nóvember
kl. 13:00-16:00
Hjá Origo, Dalvegur 30A, 201 Kópavogur
Kaffiveitingar fylgja
Verð 44.500 kr. vsk leggist ekki ofan á námskeið
Ef 2 frá sama fyrirtæki eru skráð er veitt 20% afsláttur á nemandi 2
Háskólanemendur fá sérstök kjör. Hafðu samband við okkur fyrir nánari upplýsingar.
Þú lærir:
Grunnhugtök áhættugreiningar — hvað áhætta er og hvers vegna hún skiptir máli
Einfalt og skýrt ferli til að greina, meta og forgangsraða áhættu
Hvernig á að meta líkur og afleiðingar á samræmdan hátt
Notkun áhættufylkis (risk matrix) og sniðmáta sem þátttakendur fá afhent
Leiðir til að draga úr áhættu og bregðast við henni í reynd
Raunhæf dæmi og æfingar úr íslensku atvinnulífi
Námskeiðið er fyrir:
Verkefna- og teymisstjóra
Starfsfólk í rekstri, gæðamálum eða öryggismálum
Þau sem vilja styrkja sig fyrir vottanir eða frekara nám í áhættustjórnun
Alla sem vilja taka upplýstari ákvarðanir í starfi — engin fyrri reynsla nauðsynleg
Af hverju þetta námskeið?
Öll fyrirtæki þurfa að takast á við óvissu — spurningin er hvort þau geri það af yfirvegun eða tilviljun. Áhættugreining er verkfærið sem færir ákvarðanir frá tilfinningu yfir í yfirsýn. Á þessu námskeiði færð þú:
Tíma vel varið. Á aðeins þremur klukkustundum færð þú grunninn sem margir eyða mun lengri tíma í að læra af eigin raun.
Skýrari yfirsýn. Þú lærir einfalda aðferð til að greina áhættu, svo þú hættir að giska og byrjar að vita.
Meira sjálfstraust í starfi. Þú getur bent á áhættuþætti áður en þeir verða að vandamálum — og rökstutt mál þitt þannig að samstarfsfólk og stjórnendur taki mark á því.
Verkfæri sem þú notar strax. Engin þung fræði — þú gengur út með aðferð og sniðmát sem þú getur beitt í starfi strax daginn eftir.
Forskot í starfsframa. Þekking á áhættugreiningu er eftirsótt hæfni í verkefnastjórnun, rekstri, upplýsingatækni og öryggismálum.
Námskeiðið fer fram með fyrirlestri, myndskeiði, umræðum og verkefni. Þátttakendur þurfa ekki að nota fartölvu á námskeiðinu.
Leiðbeinandinn:
Magnús Hildershavn Nilsen er efnaverkfræðingur og gæðastjóri hjá Origo með yfir 20 ára alþjóðlega reynslu af gæðastjórnun, meðal annars hjá stórfyrirtækinu Elkem þar sem hann bar ábyrgð á gæðakerfum fyrir starfsstöðvar með þúsundum starfsmanna í ólíkum löndum og menningarheimum. Hann er jafnframt staðfestur úttektarstjóri samkvæmt ISO 42001 og hefur djúpa þekkingu á því hvernig fyrirtæki greina og stýra áhættu í daglegum rekstri.
Verð: 44.500 kr.
ATH! Hægt er að sækja um styrk frá flestum menntasjóðum stéttarfélaga.
Ertu ekki viss?
Fáðu innblástur — lestu bloggið okkar. ps. er í vinnslu