Magnus Hildershavn Nilsen
Leiðbeinandi í Áhættugreining
  • 25. nóvember
  • kl. 13:00-16:00
  • Hjá Origo, Dalvegur 30A, 201 Kópavogur
  • Kaffiveitingar fylgja
  • Verð 44.500 kr. vsk leggist ekki ofan á námskeið
  • Ef 2 frá sama fyrirtæki eru skráð er veitt 20% afsláttur á nemandi 2
  • Háskólanemendur fá sérstök kjör. Hafðu samband við okkur fyrir nánari upplýsingar.
  • Grunnhugtök áhættugreiningar — hvað áhætta er og hvers vegna hún skiptir máli
  • Einfalt og skýrt ferli til að greina, meta og forgangsraða áhættu
  • Hvernig á að meta líkur og afleiðingar á samræmdan hátt
  • Notkun áhættufylkis (risk matrix) og sniðmáta sem þátttakendur fá afhent
  • Leiðir til að draga úr áhættu og bregðast við henni í reynd
  • Raunhæf dæmi og æfingar úr íslensku atvinnulífi
  • Verkefna- og teymisstjóra
  • Starfsfólk í rekstri, gæðamálum eða öryggismálum
  • Þau sem vilja styrkja sig fyrir vottanir eða frekara nám í áhættustjórnun
  • Alla sem vilja taka upplýstari ákvarðanir í starfi — engin fyrri reynsla nauðsynleg

Öll fyrirtæki þurfa að takast á við óvissu — spurningin er hvort þau geri það af yfirvegun eða tilviljun. Áhættugreining er verkfærið sem færir ákvarðanir frá tilfinningu yfir í yfirsýn. Á þessu námskeiði færð þú:

  • Tíma vel varið. Á aðeins þremur klukkustundum færð þú grunninn sem margir eyða mun lengri tíma í að læra af eigin raun.
  • Skýrari yfirsýn. Þú lærir einfalda aðferð til að greina áhættu, svo þú hættir að giska og byrjar að vita.
  • Meira sjálfstraust í starfi. Þú getur bent á áhættuþætti áður en þeir verða að vandamálum — og rökstutt mál þitt þannig að samstarfsfólk og stjórnendur taki mark á því.
  • Verkfæri sem þú notar strax. Engin þung fræði — þú gengur út með aðferð og sniðmát sem þú getur beitt í starfi strax daginn eftir.
  • Forskot í starfsframa. Þekking á áhættugreiningu er eftirsótt hæfni í verkefnastjórnun, rekstri, upplýsingatækni og öryggismálum.

Ertu ekki viss?

Fáðu innblástur — lestu bloggið okkar.
ps. er í vinnslu

Lesa bloggið →
Skráning á námskeið: