Gæðastjóri til leigu: Gæðastjórnun ætti að vera hluti af daglegum rekstri
Gæðastjórnun er oft eitthvað sem fyrirtæki vita að skiptir máli en eiga erfitt með að koma í framkvæmd. Mörg lítil og meðalstór fyrirtæki vilja bæta rekstur sinn, einfalda ferla og jafnvel undirbúa sig fyrir ISO vottun en hafa ekki þörf eða svigrúm fyrir gæðastjóra í fullu starfi. Gæðamálin enda því oft á hliðarlínunni, eitthvað sem á að taka betur fyrir síðar.
Til að mæta þessu býður CCQ nú upp á þjónustuna Gæðastjóri til leigu. Þjónustan er hugsuð fyrir fyrirtæki sem vilja vinna markvisst að gæðastjórnun án þess að þurfa að ráða gæðastjóra í fullt starf. Markmiðið er að gera gæðastjórnun að virkum hluta rekstrarins en ekki að það sé aðeins verkfæri sem er tekið upp þegar úttekt nálgast.
Reynslumikill gæðastjóri með alþjóðlega sýn
Í nýjasta þætti af CCQ Stundinni settist Maria niður með Magnusi Hildershavn Nilsen, nýjum sérfræðingi hjá CCQ / Origo en hann mun sinna hlutverki gæðastjóra til leigu. Magnus hefur yfir 20 ára reynslu af gæðamálum á alþjóðavísu og hefur leitt innleiðingu og þróun gæðakerfa fyrir stór og flókin fyrirtæki víða um heim.
Magnus er norskur efnaverkfræðingur og starfaði lengst af hjá alþjóðlega stórfyrirtækinu Elkem. Þar sinnti hann gæðamálum í ólíkum löndum og menningarheimum. Á ferlinum bar hann ábyrgð á gæðakerfum fyrir deildir með þúsundir starfsmanna og flókna rekstrarferla.
„Ég lærði að sjá hlutina frá mismunandi sjónarhornum. Við viljum öll vel og allir eru að reyna að gera sitt besta. Áskorunin er að finna sameiginlega leið áfram og tryggja að allir skilji hvert markmiðið er.“
Einfaldleiki í fyrirrúmi
Á þessum 20 árum hefur Magnus séð gæðastjórnun breytast verulega. Þar sem áður var mikill fókus á skjöl, útgáfunúmer og formkröfur er áherslan í dag mun meiri á virkni og tengingu við reksturinn sjálfan.
„Virkt gæðakerfi er þegar starfsfólk notar það án þess að þurfa stöðugt að hugsa um ISO9001. Þá er þetta bara orðið hluti af daglegum rekstri.“
Að mati Magnusar er algengasta mistökin þegar fyrirtæki eru að innleiða gæðakerfi að flækja hlutina of mikið. Það þarf ekki að skjalfesta hvert einasta smáatriði heldur er mikilvægara að einbeita sér að því sem skiptir máli fyrir starfsfólkið, reksturinn og viðskiptavini.
Hvað felst í þjónustunni Gæðastjóri til leigu?
Gæðastjóri til leigu er sveigjanleg þjónusta sem aðlagast þörfum hvers fyrirtækis. Magnus getur komið inn til fyrirtækja í skemmri eða lengri tíma, í hlutastarf eða tímabundið, allt eftir því hvað hentar hverju sinni.
Þjónustan getur meðal annars verið:
- Undirbúningur fyrir ISO vottun
- Innri úttektir og rótargreining
- Uppsetning eða endurskoðun gæðakerfis
- Innleiðing gæðamenningar
- Tímabundin afleysing, t.d. ef starfsmaður fer í orlof
Fyrirtæki fá þannig aðgang að mikilli sérþekkingu án þess að þurfa að ráða gæðastjóra í fullt starf.
Gæðastjórnun sem hluti af daglegum rekstri
Eitt mikilvægasta ráð Magnusar er að stjórnendur ættu að gefa gæðastjórum skýrt umboð. Gæðastjórnun á ekki að vera eitthvað sem er unnið eftir hádegi á miðvikudögum, heldur eðlilegur hluti af allri ákvarðanatöku.
Þegar gæðastjórnun verður hluti af menningu fyrirtækis skapast betri yfirsýn, meiri þátttaka starfsfólks og markvissar umbætur.
