Einfalt vottunarferli

Innbyggðir staðlar og skýr yfirsýn yfir kröfur einfalda alla vinnslu við vottun. Úttektaraðilar fá sérsniðið yfirlit sem flýtir fyrir ferlinu.

Yfirlit yfir stöðu mála

CCQ gefur þér skýra mynd af því hvar þú stendur á hverjum tíma. Þú sérð strax hvað þarf að bæta, hvaða skjöl vantar og hvaða ferlar þarfnast athygli.

Tímasparnaður

Með CCQ sparar þú tíma þar sem allt er á einum stað. Kerfið heldur utan um alla nauðsynlega skráningu og tryggir að allt sé tilbúið fyrir úttekt.

Innbyggð leiðsögn

Kerfið kemur með innbyggðum sniðmátum og verkflæði sem byggir á bestu starfsvenjum. Það leiðir þig í gegnum hvert skref og tryggir að hlutirnir séu rétt gerðir.

  • Sjálfvirk útgáfustýring og breytingaskrá.
  • Örugg geymsla með viðeigandi aðgangsstýringu.
  • Reglulegar endurskoðanir með stafrænum áminningum.
  • Rekjanleiki á breytingum.
  • Sjálfvirkt úttektaráætlun sem tekur mið af áhættu og fyrri niðurstöðum.
  • Staðlaðir gátlistar og sniðmát fyrir faglegar úttektir.
  • Skjalfesting á niðurstöðum og sjálfvirk eftirfylgni.
  • Tenging við frábrigðakerfi.

Skjalfest verklag

Virk gæðastjórnun þýðir að gæðakerfið er hluti af daglegum rekstri fyrirtækisins. Það er ekki aðeins til staðar fyrir úttektir, heldur er það notað til að bæta þjónustu, rekstur og innri ferla.

Í virku gæðakerfi vinnur starfsfólk samkvæmt skjalfestu verklagi og veit hvar upplýsingar er að finna. Árangur er mældur reglulega og frávik skráð svo mistök endurtaki sig ekki. Umbætur verða hluti af menningu fyrirtækisins og kerfið þróast stöðugt með fyrirtækinu með það að markmiði að tryggja gæði, auka ánægju viðskiptavina og árangursríkan rekstur.

Starfsfólk vinnur samkvæmt skjalfestu verklagi og veit hvar upplýsingar er að finna.

Árangur er mældur reglulega og niðurstöður nýttar til umbóta.

Frávik eru skráð, greind og leiðrétt svo mistök endurtaki sig ekki.

Umbætur eru hluti af menningu fyrirtækisins þar sem allir taka þátt.

CCQ STUNDIN

Hvaða væntingar hefur úttektaraðili fyrir úttekt?

Fáðu ráðgjöf