Origo hefur nú innan sinna raða staðfestan úttektarstjóra samkvæmt ISO 42001 – alþjóðlega staðlinum um stjórnunarkerfi fyrir gervigreind.

Origo styrkir teymið í stjórnunarkerfi gervigreindar:

Magnus H. Nilsen staðfestur úttektarstjóri skv. ISO 42001.

Origo hefur nú innan sinna raða staðfestan úttektarstjóra samkvæmt ISO 42001 – alþjóðlega staðlinum um stjórnunarkerfi fyrir gervigreind.

Magnus H. Nilsen lauk nýlega þjálfun og vottun sem gerir honum kleift að meta og leiðbeina fyrirtækjum við uppbyggingu slíkra kerfa.
Þetta er ný áhersla hjá Origo. Eftir því sem fyrirtæki taka gervigreind í auknum mæli inn í kjarnastarfsemi sína, vex þörfin fyrir skýrt regluverk um hvernig hún er notuð – ábyrgt, öruggt og í samræmi við kröfur viðskiptavina, eftirlitsaðila og alþjóðlegra staðla. ISO 42001 er svarið við þeirri þörf: staðall sem hjálpar fyrirtækjum að sýna fram á að gervigreind sé notuð af yfirvegun og ábyrgð.
Með þjálfun Magnusar bætir Origo þessari þekkingu við þjónustuna „Gæðastjóri til leigu“ – þar sem viðskiptavinir fá aðgang að sérfræðingi í gæða- og stjórnunarkerfum án þess að þurfa að ráða slíkan sérfræðing í fullt starf. Viðskiptavinir sem eru að stíga sín fyrstu skref í stjórnun á gervigreind geta nú fengið stuðning frá Origo við að byggja upp, innleiða og undirbúa vottun stjórnunarkerfis samkvæmt ISO 42001 – allt frá stefnumótun, áhættumati og áhrifamati til innri úttekta.
Þetta þýðir að viðskiptavinir Origo þurfa ekki að byggja upp þessa þekkingu sjálfir. Þeir fá aðgang að sérfræðingi sem þekkir bæði kröfur staðalsins og raunveruleika íslensks atvinnulífs – og geta þannig náð forskoti í ábyrgri notkun gervigreindar.

Nánar um þjónustuna „Gæðastjóri til leigu“ má finna hér,

Similar Posts