CCQ Öryggisgátt og SusieQ MCP þjónn
🔒 CCQ Öryggisgátt
Öryggisgáttin tryggir aðgengi að útgefnum gæðaskjölum þótt CCQ kerfið sjálft sé af einhverjum ástæðum óaðgengilegt. Kerfið vistar útgefin skjöl sjálfvirkt á PDF-formi á hverri nóttu, þannig að þau eru ávallt til taks staðbundið þegar á þarf að halda – til dæmis í neyðartilvikum eða ef truflun verður á aðgengi að netþjónustu.
Nánari upplýsingar og sýnikennslu má nálgast í eftirfarandi myndskeiði:
👉 Öryggisgáttin er valkvæð áskrift. Þau sem hafa áhuga á að virkja hana fyrir sína stofnun eru hvött til að hafa samband við okkur og óska eftir nánari upplýsingum og tilboði.
Langar þig að tengja Útgefin skjöl úr Gæðahandbók við Copilot, Claude eða aðra gervigreind?
Við erum spennt að tilkynna að ný viðbótarlausn er á leiðinni fyrir CCQ – MCP netþjónn (Model Context Protocol) sem gerir kleift að tengja gervigreindarlausnir beint við gögn og virkni CCQ kerfisins. Þetta opnar á nýja möguleika í sjálfvirkni og aðgengi að upplýsingum í gegnum gervigreind.
Þau sem vilja fá nánari upplýsingar um þessa nýju lausn eru hvött til að hafa samband við okkur sem fyrst.
